Andskotans vitleysa að úthýsa helvíti

Það er víðar en á Íslandi sem klerkarnir reyna að falsa og fegra Biblíuna, þegar nýjar útgáfur líta dagsins ljós.

Túlkar ekki Biblían orð og vilja guðs? Geta menn bara breytt guðs orði ef það þjónar einhverjum annarlegum hagsmunum sem breyttur tíðarandi hefur skapað?

Verður þá ekki bara að falsa alla Biblíuna smám saman?

Hvað með þennan texta t.d. úr Opinberun Jóhannesar 20:10 ?

"Og djöflinum, sem leiðir þá afvega, var kastað í díkið elds og brennisteins, þar sem bæði dýrið er og falsspámaðurinn. Og þeir munu kvaldir verða dag og nótt um aldir alda"

  pd_hell_070706_ms

Er þetta ekki lýsingin á staðnum sem við syndararnir lendum á fyrir rest. Ef helvíti verður úthýst úr Biblíunni kollvarpast megnið af boðskap hennar.

 

Ég held að áhangendur Biblíunnar ættu bara að halda sig við frumútgáfuna. Annars verður þeim bara varpað á bálið eins og okkur hinum. Falsanir og ljúgvitni eru nefnilega mjög refsiverð afbrot samkvæmt Biblíunni.

Gangið á guðs vegum sem það kjósið.

Góðar stundir


mbl.is Hætt að tala um helvíti?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

tú ert búinn ad skamma gud og biblíuna svo mikid ad tú ferd beint til hel..hel...Hellissands ef tú hættir ekki...

Gulli litli, 11.3.2008 kl. 22:36

2 Smámynd: Kári S. Lárusson

Gulli, ég er hættur í bili. En ég stóð nú með guði í síðustu færslu.

Kári S. Lárusson, 11.3.2008 kl. 22:42

3 Smámynd: Gulli litli

ég er ekki ad kvarta, mér líkar tetta vel, vid erum skodanabrædur í thessum målum!

Gulli litli, 11.3.2008 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband