Þegar reiðin ein er eftir

Þegar ég les fréttir um ofurlaun bankastjóra nýju bankanna, liggur við að ég froðufelli af reiði og gremju.  Elín Sigfúsdóttir var ráðin í nýja Landsbankann með 1.950.000 kr á mánuði.  Eftir heiftarlega gagnrýni almennings voru launin lækkuð um 450.000 kr. 

Aaaaaarrrrrrrrrgg....

....-hver andskotinn er inni í hausnum á þessum bankaráðsfíflum ? Finnst einhverju heilvita og eðlilega þenkjandi fólki að bankastjóri sé svo mikils virði að hann eigi skilið hærri laun en forsætisráðherra þjóðarinnar? Og það eftir að hafa ásamt öllum hinum bankasnillingunum, rústað þjóðfélagi okkar með framgöngu sinni

Í þessu umrædda tilfelli kemur bankastjórinn úr hópi stjórnenda gömlu bankanna. Og forsætisráðherra hefur sjálfur sagt að þeir sömu stjórnendur,  hafi logið að stjórnvöldum um stöðu bankanna með þeim hroðalegu afleiðingum sem öllum er kunnugt um. Og þeim sé fyrst og fremst um að kenna hvernig fór.

Og þar að auki hefur frúin bíl til umráða á kostnað ríkisins.

Hún er sem sagt hærra metinn til launa, heldur en sá sem á að reisa þjóðfélagið úr rústum sem hún og henni líkir hafa skapað.

Ég er farinn út á hlað til að öskra .......- og sennilega æli ég líka.

 


mbl.is Forstjóri Landsbankans lækkar í launum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Helgi Helgason

Heill og sæll; æfinlega, Kári !

Líkast til; er ekki langt í, að vopnfærir menn, taki að hugsa sinn gang, innan ekki svo langs tíma, haldi fram, sem nú horfir.

Megi þú; og fjölskyldan öll, hafa það sem bezt, á komandi hátíðisdögum, sem aðrar stundir allar. og með nýju ári  /

Með baráttukveðjum, úr Árnesþingi  -

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason, 23.12.2008 kl. 23:27

2 Smámynd: Kári S. Lárusson

Sæll Óskar og takk fyrir innlitið.

Óska þér og þínu fólki gleðilegra jóla.

Gangi ykkur allt í haginn á komandi tíð.

Góðar kveðjur frá okkur Kristínu,

Kári S. Lárusson, 23.12.2008 kl. 23:40

3 Smámynd: Kári S. Lárusson

Sæll Rúnar !

Og takk fyrir innlitið

Það hefur aldrei vafizt fyrir mér að skilja þá sem sem sjá í svart hvítu, en mér hefur hinsvegar gengið treglega að átta mig á þeim sem sjá eingöngu rauða litinn. 

Mig hefur lengi grunað að fólki sem er þannig ástatt með, sé svipað innanbrjósts og heimsku nauti sem æðir stjórnlaust fram og sér þá víst bara rautt, að því talið er.

Ekki nefndi ég nú Davíð neitt á nafn í þessari færslu sem þú commentar við og hafði hann alls ekkert í huga við ritun hennar. Enda er hann mér ekkert hugstæðari en aðrir þessa dagana, öfugt við flesta sem virðast hafa hann á heilanum allan sólarhringinn.

Þú gefur þér samt að ég telji Davíð saklausan með öllu af því sem á hann hefur verið borið og jafnframt að mér finnist hann dásamlegur og að ástríki sé með okkur.

Þú talar jafnframt um að ég "skvetti úr koppi mínum yfir fólk".

Og skrif mín "virka ofstækisfull" á þig

Gott og vel.  Ég vona bara að þú hafir ekki beðið varanlegt tjón á þinni ofurviðkvæmu sál, við að lesa pistla mína.

Ég var lengi vel flokksbundinn sjálfsstæðismaður. Sá tími er að baki fyrir alllöngu síðan. Ég var landsfundarfulltrúi þegar Davið var kosinn formaður flokksins með litlum mun. Ég var ekki í stuðningsmannahópi Davíðs og ég var eini landsfundarfulltrúinn sem sat sem fastast í sæti mínu þegar Davíð var hylltur að loknu kjöri.  Bara svo því sé haldið til haga.

Gegnum árin hef ég oft gagnrýnt Davíð, en jafnan reynt að hafa þá gagnrýni málefnalega og á rökum reista.

Sú gagnrýni sem nú dynur á Davíð Oddsyni er af nokkuð örðum toga sýnist mér. Samfylkingin með formann sinn í broddi fylkingar, ásamt með Baugsmiðlunum í boði Ólafs Ragnars, hafa farið hamförum í blindu hatri sínu á Davíð.

Þessi stanzlausi áróður hefur greinilega blindað meirihluta þjóðarinnar og þar virðist þú ekki vera undanskilinn Rúnar.

Mér dettur í hug vísa Hannesar Hafstein:

Taktu ekki níðróginn nærri þér.

Það næsta gömul er saga,

að lakasti gróðurinn ekki það er

sem ormarnir helst vilja naga.

Þó að stanslaus níðrógurinn úr ormagryfju Samfylkingarinnar dynji stanslaust á Davíð, stendur hann samt keikur eins og kletturinn í hafinu.  Af hverju er ekki löngu búið að reka hann ?

Ingibjörg Sólrún sagði á dögunum að það væri alveg bráðnauðsynlegt að sameina Fjármálaeftirlitið og Seðlabankann áður en krónan færi á flot, svo hægt væri að gera skipulagsbreytingar og losna þannig við Davíð.

Og krónan er komin á flot og ekkert gerist.  Davíð situr sem fastast og ekkert heyrist í Ingibjörgu. Hversvegna skyldi það nú vera?

Og Viðskiptanefnd kallaði Davíð á teppið. Og hvað gerðist á teppinu Viðskiptanefndar ?  Jú, Davíð las yfir nefndarmönnum  og þeir komu náfölir og skjálfandi út og höfðu lítið að segja við fréttamenn. Hvers vegna skyldi það nú hafa verið ?

Ég tel að Davíð Oddsson hljóti að hafa gert ýmsar skammir af sér á sínum langa ferli. Allir gera sín mistök og hann líka.  En ég held að fáir hefðu staðið af sér jafn hatramma níðrógsherferð og Davíð hefur mátt þola undangengin misseri. Það sýnir styrk hans.

Ég hef aldrei verið neinn sérstakur talsmaður Davíðs Oddssonar, þó þú gefir það í skyn Rúnar.  Ég hef þó, öfugt við þig, ekki hlaupið í blindi eftir því hvernig Baugsvindarnir blása, í afstöðu minni til hans.

Ég mun, hér eftir sem hingað til, "skvetta úr koppi" mínum  yfir hvern þann sem til þess kann að vinna. Vona að þú takir það ekki óstinnt upp.

Vel má vera að ég sé ofstækisfullur. Ég hef þó aldrei blindast af trúarofstæki. Hvorki séð ljósið í araba á sandölum eða Ingibjörgu Sólrúnu.

Frábið mér líka Davíð Oddsson og Ólaf Ragnar.  Snýst samt til varnar þessum aðilum ef mér finnst ástæða til. Þannig er það í tilfelli Davíðs nú um stundir. 

Að öðru leyti þakka ég fyrir hlý og góð orð í minn garð.

Hafðu það sem allra bezt

Með góðri kveðju,

Kári S. Lárusson, 26.12.2008 kl. 15:15

4 identicon

Sæll Kári.

Gaman að vera komin í samband við þig.

Þú svarar hressilega og gaman af því. Nú veit ég ekki hvort þú ættlar mér að vera einn af þessum " rauðu " er þú nefnir svo, en ég get fullyrt við þig að svo er ekki, þrátt fyrir að mér þyki sá litur fallegur.

Í þessari grein þinni þá nefndir þú ekki nafn Davíðs, en það hafðir þú get áður í bloggi þínu, og því var það ástæðan fyrir því að ég nefndi hann.

Einnig er eins og þú teljir að ég sé blindaður af  baugsvindum, ekki átta ég mig á því hvernig þú færð það út. Ég vona bara að þú teljir mig geta hugsað sjálfstætt þrátt fyrir að þú teljir mig svona ofurviðkvæman, og ekki er laust við að mér þyki þú svolítið viðkvæmur vegna orða minna við bloggi þínu.

En að mínu áliti er bara gott að vera viðkvæmur fyrir hlutunum, því þá er líklegra að maður vaði ekki yfir aðra.

Mér þykir leitt hafi ég " meitt " þig með orðum mínum slíkt var ekki í mínum huga gert.

Og af því að þú sér eitthvað " Rautt " í mér þá er það líklega vegna þess hversu mikill draumóramaður ég er. það hefur einfaldlega verið mitt hlutskipti og ég hvarta ekki yfir því, en að ég sé það einfaldur að ég t.d. muni kjósa vinstri græn, yfir því þarft þú ekki að hafa áhyggjur.

Og í framtíðinni væri mun ánægjulegra að vera í sambandi um önnur mál en pólitík.

Pólitík er skaðræði

er sést hér æði oft.

Aðeins fals og fláræði

og framapota loft.

Ég óska þér og þinna  gleðilegra hátíðisdaga og góðrar framtíðar.

Þinn gamli.

Rúnar Hart.

Kristinn Rúnar Hartmannsson (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband